Wochart og Innerkrems í Austurríki

January 27th, 2010

Þá er það að frétta síðan ég var í Zagreb að ég var í fríi 21. jan, æfði svig með hinum í landsliðinu 22. jan í rosalega góðum aðstæðum. Búið var að ,,vatna” brautina sem við æfðum í en þá er vatni sprautað í snjóinn til að gera hann harðan og þetta var bara ís sem við vorum að æfa á og sást ekki spor í brautinni þó að við værum búnir með 30 ferðir. Það gerist ekki mikið betra ;)
Svo 23. og 24. fór ég til Göstling - Hochkar í Austurríki og keppti þar á tveimur svigmótum. Gekk mjög vel í fyrra mótinu, endaði í 5. sæti og bætti punktana mína en ég fékk 39,5 FIS punkta í því móti. Úrslit hér:
http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=60684

-Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 5 sætin
Í seinna mótinu gekk ágætlega, ég gerði mistök í fyrri ferðinni og var ekki nógu hraður í þeirri seinni og endaði í 7. sæti og fékk 44,86 FIS punkta. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=60686

-Hér er mynd af skíðasvæðinu í Hochkart, svigmótið var í brekkunni hægra megin við stólalyftuna á myndinni.

Svo keyrði ég á annan stað, Innerkrems sem er líka í Austurríki og keppti þar í tveimur risasvigum mánudaginn 25. jan. Ég keyrði út úr brautinni í fyrra mótinu á fyrstu hæðinni, það kom hressileg beygja á miklum hraða eftir flatann og ég fór of beint á portið á hæðinni og náði ekki því næsta og keyrði út úr.
Á seinna mótinu komst ég nú niður, það var mjög hröð og bein braut sem hentar mér ekki mjög vel og ég endaði í 36. sæti. Úrslit hér:
http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61885

Næst er það æfing á morgun, svo fer ég til Noregs á föstudaginn (29. jan) og keppi í stórsvigi í Norefjell 30. og 31. jan, fer svo heim með kvöldflugi 31. jan. Verður notalegt að komast í smá frí heima, þetta er búin að vera mikil törn hjá mér alveg síðan í byrjun desember.

Zagreb, dagur 2

January 20th, 2010

Stutt að segja frá seinna sviginu hérna í Zagreb, krækti í port í fyrri ferðinni og varð því að hætta keppni.

-Skíðasvæðið í Sljeme, Zagreb, Króatíu.

Zagreb, dagur 1

January 19th, 2010

Er kominn til Zagreb í Króatíu þar sem ég keppi í tveimur svigum, eitt í dag og annað á morgun. Í dag var markmiðið hjá mér að klára til þess að sjá hvar ég stæði hérna í Evrópu og öðlast meira sjálfstraust.

Aðstæður hér í eru góðar, hart og fínt færi enda stutt síðan heimsbikarmót karla var haldið í sömu brekku.

En fyrri ferðin gekk ekki mjög vel, ég missti alla ferð í seinustu nálinni og var því heilum fjórum sekúndum á eftir í þeirri ferð. Náði samt að halda mér í topp 30 og fékk því gott start í seinni ferðinni og skíðaði hana mjög vel og var bara einni sekúndu á eftir í henni og endaði því samtals 5 sekúndum á eftir fyrsta manni og í 19. sæti. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=97617&raceid=60304

Long time no blog!

January 14th, 2010

Er lítið búinn að blogga undanfarið þar sem dagskráin hefur verið mjög þétt hjá mér ;)

Kom heim 23. des og var í fríi til 26. des en þá var haldið til Akureyrar en þar áttu að vera alþjóðleg FIS svigmót 27. og 28. des. Það hafði snjóað ótrúlega mikið fyrir norðan og svakalegir skaflar úti um allt. Ekkert var keppt þann 27. vegna þess að það var svo mjúkt færi að stangirnar héldust ekki uppi. Fór samt í fjallið og frískíðaði heilmikið, fór svo í svigbraut með KR-ingum.

 

28. des var færið orðið betra og voru þá haldin tvö svigmót þann daginn. Ég skíðaði ágætlega í þeim báðum, var með besta tímann eftir fyrri ferð í fyrra mótinu en hlekktist á í þeirri seinni og endaði 14. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61962

Í seinna mótinu ákvað ég að keyra af öryggi og var heldur langt á eftir í fyrri ferðinni og ákvað að gefa aðeins í í þeirri seinni og það gekk mjög vel og ég endaði í fimmta sæti aðeins 34 sekúndubrotum á eftir fyrsta manni. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61964

Var síðan í fríi 29. des og æfði svo stórsvig í Hlíðarfjalli 30. des og keyrði heim til Reykjavíkur sama dag. Ekki stoppaði ég stutt þar því ég hélt til Noregs snemm morguns 1. jan. Var í fríi 2. jan en æfði svig 3. jan og stórsvig 4. og 5. jan. 6. jan hélt ég til Oppdal til þess að keppa í tveimur stórsvigum og tveimur svigum. Það gekk ekkert svakalega vel, en ég kláraði bara fyrsta stórsvigið en féll í einu svigi og keyrði út úr brautinni í hinu sviginu og öðru stórsviginu. Úrslit úr fyrra stórsviginu hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58063

Eftir þessi mót flaug ég til Slóveníu og hitti þar hina strákana í landsliðinu. Það var skrýtið en gaman að koma þangað því ég hafði ekkert komið í íbúðina sem við erum með í Prevalje (í Slóveníu) í næstum ár, eða síðan ég meiddist í hnénu.

Við kepptum í risasvigi 13. og 14. jan. Það gekk ekki mjög vel hjá mér en ég endaði 42 og 44. Aðstæður voru erfiðar, þoka var báða dagana og færið mjúkt þannig að brautin grófst töluvert. Úrslit hér að neðan:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58243

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58241

Framundan eru svigæfingar og svo stefni ég á að keppa í svigmótum og einbeita mér að því fram að Ólympíuleikunum. Þarf að koma mér í keppnisform í svigi, þó það hafi gengið vel á Íslandi að keppa í svigi þá þarf ég að sanna mig líka hérna úti að mínu mati. Ég er með lágmörk fyrir leikana en það er spurning hvað Ísland fær að senda marga keppendur en það kemur endanlega í ljós 25. janúar.

Æfing í Geilo og heim á Þorláksmessu

December 21st, 2009

Ætlaði að keppa í Sundsvall í Svíþjóð þann 21. og 22. des en því var aflýst og þá var ekkert annað að gera en að

-nema hvað

-æfa meira ;)

Æfi svig á morgun (22. des) hér í Geilolaupa í Geilo, fer svo heim 23. des og svo eru svigmót á Akureyri 27. og 28. des. Það er varla að maður nái að halda jólin hátíðleg :D

-Geilolaupa í Geilo

Trysil í Noregi og Åre í Svíþjóð

December 21st, 2009

Keppti í Trysil, eitt stórsvig og eitt svig. Stórsvigið gekk mjög vel, þetta var löng braut og erfið brekka, langur brattur kafli. Endaði í 17. sæti og fékk 43 punkta. Var ánægður með það því þessi úrslit eru ekki svo langt frá núverandi punktastöðu minni í stórsvigi sem eru 38 punktar. Úrslit hér að neðan:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58057

Svigið í Trysil gekk líka vel framan af, skíðaði vel í fyrri ferðinni fyrir utan ein mistök og krækti svo í seinni ferðinni og varð því að hætta keppni. Fann samt að svigformið er allt að koma til, var að skíða frekar stabílt.

Þá var ferðinni heitið til Åre, lögðum af stað þangað strax eftir svigið í Trysil því planið var að keppa í tveimur risasvigum strax daginn eftir. Ferðin þangað gekk vel, vorum komin þangað um 9, og það var svakalega kalt, 29 stiga frost! Ég fékk að gista hjá í fjallakofa sem Árni Þór Árnason á, en þar voru konan hans hún Agneta og börnin þeirra þau Edda og Andri en þau voru líka að fara að keppa á sömu mótum í Åre. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir gistinguna, svakalega notaleg hytta sem þau áttu í miðjum skóginum, en maður þurfti að ganga upp brekku í skóginum svona 200 metra frá bílastæðinu og mér leist ekkert á það fyrst, enda með 100 kíló af farangri og fjögur pör af skíðum en það hafðist auðvitað að lokum að bera allt upp ;)

-Hér sést glitta í fjallakofann hennar Agnetu og Árna Þórs

-Edda að preppa

-Andri að slaka á við arininn

Þegar við svo vöknuðum um morguninn og ætluðum upp í fjall fengum við þær fréttir að búið væri að aflýsa fyrra mótinu vegna kulda, en það var 31 stiga frost! Þá var ekkert annað í stöðunni en að skríða aftur í koju og sjá hvort ekki yrði af seinna mótinu sem átti að vera seinna um daginn. Það gekk eftir þrátt fyrir 24 stiga frost, ég setti íþróttalímband á fésið á mér til þess að fá ekki kalbletti á leiðinni niður í risasviginu enda magnast kuldinn aðeins þegar maður er á 100km hraða!

Hitti Árna og Stebba liðsfélaga mína í landsliðinu, þeir kepptu líka í risasviginu. Þeir voru hressir og gaman að hitta þá aftur :)

Mér gekk vel í mótinu, hafði ekki verið að skíða risasvig neitt frábærlega í fyrra og var því ánægður með 21. sætið og 69 punkta. Úrslit hér að neðan:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61991

Næsta dag var keppt í stórsvigi. Það fór ekki betur en svo að ég fór á hliðina einu sinni og missti næstum af einu porti á öðrum stað þannig að ég var 3 sekúndur á eftir fyrsta manni eftir fyrri ferð. Var farinn að finna smá til í hnénu og ákvað því að sleppa seinni ferðinni og hvíla mig fyrir hitt stórsvigið sem var daginn eftir.

Það gekk betur, ég kláraði báðar ferðir án mikilla vandkvæða en var heldur langt á eftir eða 3,49 sekúndur og gerði 49 punkta. Var þó ánægður að ná niður báðar ferðir. Úrslit hér að neðan:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=60792

Svig í dag

December 13th, 2009

Keppti í svigi í dag hér í Geilo, var feginn að hafa tekið frí í gær því það er smá vökvi í hnénu eftir stórsvigið. Náði samt að beita mér fínt í dag, enn vantar þónokkuð uppá svigformið en ég hafði ekki skíðað það í einn og hálfan mánuð. Úrslit hér að neðan:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58054

Fer svo til Trysil í Noregi á þriðjudaginn þar sem ég keppi í einu svigi og einu stórsvigi, svo til Åre í Svíþjóð þar sem ég keppi í tveimur risasvigum og tveimur stórsvigum. Að lokum eru tvö svig í Sundsvall í Svíþjóð en ég kem svo heim til Íslands eftir það, eða 23. des.

Þetta er þétt plan og ég er bjartsýnn á framhaldið :)

Stórsvig nr. 2 í Geilo

December 11th, 2009

Keppti í stórsvigi í dag í Geilo.

Markmiðið í dag var að ná að klára báðar ferðir, það tókst og ég er sáttur.

Endaði í 17. sæti, 2,47 sekúndur á eftir fyrsta manni og gerði 48,28 FIS punkta.

Úrslit hér að neðan

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58052

-Vestlia í Geilo

Ég hef ákveðið að vera ekki með í sviginu á morgun, bæði út af því að ég er ennþá smá bólginn í bakinu og líka af því ég var mjög stífur í hnénu eftir daginn. Veit að einn frídagur gerir mér bara gott, ætla samt að hjóla og á morgun og gera maga, bak og hendur í Gymminu ;)

Akureyri og Geilo í Noregi

December 10th, 2009

Ég og Teddi sjúkraþjálfari náðum að laga bakið á rúmlega tveimur vikum. Ég mætti til hans tvisvar á dag, um morgun og eftirmiðdaginn. Fyrripartinn setti hann mig í vél sem togar hrygginn í sundur (ætli ég hafi lengst eh við það :D) til þess að útbungunin á brjóskinu gæti farið aftur á sinn stað, og í aðra vél sem var svona einhver hitari til þess að mýkja vöðvana. Seinni partinn var ég svo í nuddi og gerði æfingar. Á milli þess sem ég var hjá Tedda gekk ég um alla borgina, einnig synti ég heilmikið bringusund en þetta á hvort tveggja að vera gott fyrir bakið. Svo bættust við æfingar smám saman þangað til að ég var orðinn nógu góður til að fara á skíði aftur og þá dreif ég mig með morgunflugi til Akureyrar fimmtudaginn 4. des og hitti landaliðið. Þar var búið að snjóa heilmikið þannig að það var bara púðurskíðun fyrsta daginn, svo frískíðun og tækniæfingar annan daginn en þá fann ég að ég var orðinn nógu góður til að fara á fullt og ákvað að fara til Noregs að keppa næsta mánudag (7. des).

-Pétur í nýja freeride-gallanum, Stebbi og Tinna

Strákarnir í landsliðinu fara til Austurríkis og planið hjá þeim var að skíða hraða (risasvig og brun) og ég vildi frekar einbeita mér að tæknigreinunum (svig og stórsvig) þar sem ég tel mig sterkari en ég stefni auðvitað ennþá að því að ná ólympíulágmörkum. Svo á laugardeginum æfðum við svig í stólalyftunni í Hlíðarfjalli, það var heldur heitt veður þannig að færið var frekar mjúkt en náðum samt ágætri æfingu í svigbraut.

Nú er kominn fimmtudagur, en ég æfði stórsvig hérna í Geilo á þriðjudaginn og tók mér frídag í gær. Í dag keppti ég svo í fyrsta mótinu síðan ég meiddist í febrúar. Það var keppt í stórsvigi og ég startaði nr. 15 og var 90 sekúndubrotum á eftir fyrsta manni eftir fyrri ferð. Var mjög ánægður með það, en náði svo ekki að klára seinni ferðina.

Á morgun (föstudag 11.des) keppi ég aftur í stórsvigi, svo er planið að keppa í svigi á laugardag og sunnudag, allt hér í Geilo í Noregi.

Brjósklos

November 29th, 2009

Í segulómuninni kom í ljós að ég var með brjósklos í bakinu, gula pílan á myndinni að ofan sýnir hvar brjóskið hefur ,,lekið” úr hryggnum og ýtir aðeins á mænuna sem svo veldur verknum.

Ég er bjartsýnn á að þetta lagist fljótlega, á fáeinum vikum, er ekki lengur með verki og er byrjaður að gera bakæfingar o.fl. æfingar. Núna þarf ég að passa mig að fara varlega þangað til þetta er búið að lagast. Þangað til fylgi ég fyrirmælum frá Tedda sjúkraþjálfara og geri æfingar sem styrkja bakið, hann mun segja mér hvað ég má gera og hvað ekki. Helst vil ég auðvitað bara fara á fullt strax aftur ;) en það má víst ekki. Þetta þarf að gróa fyrst.