Afrekaskrá og markmið Gísla Rafns

Bikarmeistari SKÍ í flokki 17-19 ára 2006.

Tók þátt í heimsmeistaramótinu í Åre í Svíþjóð í febrúar 2007.

Landsmót; flokkur fullorðinna:

2007 svig 2. sæti

2008 svig 2. sæti, stórsvig 3. sæti, alpatvíkeppni 2. sæti.

Ég stefni á að keppa á ólympíuleikunum í Vancouver í Kanada 2010 í öllum greinum. Eins og staðan er í dag hef ég þegar náð lágmörkum í super combi og er mjög nálægt því að ná lágmörkum í svigi.

Árangur á alþjóðlegum FIS mótum: silfur:3 brons: 2.

Síðastliðið sumar fór ég til Ástralíu og Nýja-Sjálands og keppti þar í álfubikarnum og endaði þar í 15. sæti fyrir samanlagðan árangur. Þar náði ég einnig 6. sæti í stórsvigi.

Á seinasta skíðaári (2007-2008) náði ég 7 sinnum að vera á meðal 10 efstu manna á alþjóðlegum FIS-mótum.

 

Þessi árangur sýndi mér að ég gæti náð enn lengra ef ég héldi áfram á sömu braut, en ég stefni að því að vera árið 2010 kominn í hóp þeirra bestu í heiminum og ná sæti undir 20 á ólympíuleikum það ár.

 

Á döfinni hjá mér núna eru æfingar, alþjóðleg FIS mót, og Evrópubikarmót. Svo er heimsmeistaramót í Val di ser í Frakklandi í febrúar 2009.

 

Gísli Rafn Guðmundsson

 

Slóð til að sjá úrslit móta frá upphafi:

http://www.fis-ski.com/uk/604/613.html?sector=AL&competitorid=71967&sort=&type=result&limit=0

 

Slóð til að sjá stöðu íþróttamanns á Heimslista:

http://www.fis-ski.com/uk/604/613.html?sector=AL&competitorid=71967&type=fispoints&Search=Select