Um mig

Ég heiti Gísli Rafn Guðmundsson og ég æfi skíði með A-landsliði karla. Ég er líka í fjarnámi í umhverfisskipulagi (landslagsarkitektúr) við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Megin markmið mín í skíðunum er að komast á ólympíuleikana 2010 í Vancouver í Kanada og komast í hóp þeirra bestu í heiminum innan fimm ára. Það er mjög líklegt að ég komist á ólympíuleikana 2010 vegna þess að ég hef verið með lágmörk fyrir þá síðan árið 2007. Nú verð ég að halda þeim þangað til í október á næsta ári, en þá verður maður að vera með lágmörk ætli maður að keppa á ólympíuleikunum. Ég og tveir aðrir íslendingar eru nú með lágmörk fyrir ólympíuleikana en fjórir mega keppa í hverri grein fyrir Ísland. Greinarnar sem keppt er í á ólympíuleikunum í alpagreinum eru 5: Svig, stórsvig, risasvig, brun og tvíkeppni (ein ferð brun/risasvig og ein ferð svig). Ég er nú með lágmörk í tvíkeppni.


-Gísli Rafn

Að æfa með landsliðinu er ekki alltaf auðvelt og því fylgja mikil ferðalög, en það er nú alltaf skemmtilegt ;). Við æfum mestallt árið, fáum frí í ca. tvær vikur á vorin. Þá taka við þrekæfingar um sumarið en þá æfum við átta sinnum í viku fjölbreyttar æfingar, lyftingar, þrek (hlaup t.d.) og snerpu.
Um mitt sumarið reynum við að komast á jökul í eina-tvær vikur. Svo höfum við síðastliðin tvö ár farið til Ástralíu og Nýja-Sjálands í ágúst og dvalið þar í mánuð við æfingar og keppt samhliða æfingum í Álfubikarnum. Um haustið dveljum við mestmegnis á jöklum eða skíðum innanhúss við æfingar og svo hefst keppnistímabilið í nóvember-desember en það stendur alveg fram í apríl. Þó tökum við alltaf góðar æfingar á milli móta.
Í skíðunum snýst þetta auðvitað bara um æfingu eins og í öllum öðrum íþróttum og maður er alltaf að gera sitt besta til að verða betri en hinir og stór þáttur í því er að æfa meira og betur en aðrir, en því fylgja heimlikil ferðalög um skíðasvæði heimsins til þess að finna bestu aðstæður hverju sinni. Þetta er líka mjög kostnaðarsöm íþrótt og okkur sárvantar fleiri styrktaraðila.

Helstu afrek:
-Var bikarmeistari SKÍ í 17-19 ára flokki 2006.
-Keppti á HM í Åre 2007.
-Hef æft með A-landslið karla síðan 2006.
-Alþjóðleg mót: Silfur: 3 brons: 2

Gísli Rafn Guðmundsson

gislirafn@visir.is
S: 845-6652