Silfur á Landsmóti
Nú er landsmótið á skíðum á Dalvík afstaðið en það fór fram um seinustu helgi.
Ég fór norður á Dalvík á miðvikudaginn í seinustu viku og ætlaði að æfa þangað til að landsmóti en eftir tvær ferðir í stórsvigi á miðvikudeginum fann ég mikið til í hnénu og ákvað því að taka alveg hvíld fram að stórsviginu á laugardeginum og láta þessar tvær ferðir duga sem æfing fyrir það.
Gekk síðan ágætlega í stórsviginu og náði 2. sæti á eftir Björgvini en Stefán var í því þriðja.
-Stefán, Björgvin og Gísli Rafn
Fanney systur gekk líka vel en hún náði þriðja sæti í sviginu og alpatvíkeppni.
-Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir
-Íris, María og Fanney
Þá urðum við í SKRR (Skíðaráð Reykjavíkur) bikarmeistarar í heildarstigakeppninni 2010
-SKRR
Framundan hjá mér eru æfingar sem reyna lítið á hnéð, er enn að ná því góðu og á að skíða sem minnst meðan ég er að jafna mig. Reikna svo með að keppa í stórsviginu á FIS-móti þarnæstu helgi á Akureyri ef ég verð verkjalaus í hnénu. Er búinn að ákveða að keppa ekki í svigi það sem eftir er af vetrinum, það þýðir lítið fyrir mig meðan hnéð er svona slæmt.



