Bláfjöll, Dalvík og Oddskarð
Fór í seinustu viku til Dalvíkur og æfði þar með Bjögga í þokkalegum aðstæðum. Færið var svolítið mjúkt en ekki svo slæmt engu að síður. Æfðum svig mánudag með Danda og liðinu á Dalvík og svo æfðum við sjálfir stórsvig á þriðjudaginn. Fór svo heim og flaug til Egilsstaða og æfði með Ármanni í Oddskarði á fimmtudag og föstudag. Fann mikið til í hnénu í svigæfingu á fimmtudeginum en það var löng braut og erfitt færi. Æfði svo stórsvig á föstudeginum.
Keppti svo í stórsvigi á laugardeginum og keyrði út úr brautinni í fyrri ferð. Var búinn að vera með hita um nóttina og morguninn og var frekar slappur í skoðuninni sem gæti haft sitt að segja…
Svo ákvað ég að keppa ekki í sviginu á sunnudeginum heldur freista þess að ná mér frekar góðum í hnénu fyrir landsmót sem fer fram þarnæstu helgi. Ætla að hvíla hnéð þangað til, en geri auðvitað þær æfingar sem ég get og reyna ekki mikið á hnéð þangað til. Það er t.d. hjóla, jafnvægisæfingar og lyftingar.