Svigmót í Kirkerud brekkunni í Bærum, Osló
Keppti á laugardaginn í tveimur svigmótum í Kirkerud brekkunni hér í Osló. Var mjög gaman að koma þangað aftur eftir að hafa æft þarna með Bærum skiklub þegar ég var krakki. Hafði ekki komið í brekkuna í 15 ár og í minningunni var hún auðvitað miklu lengri þar sem ég var svo lítill, en í rauninni er hún mjög stutt
Fyrra mótið gekk vel, átti frekar hæga fyrri ferð en fína seinni. Var 90 sekúndubrot á eftir í seinni en 1,88 sekúndur í fyrri, samtals 2,78 sekúndur á eftir fyrsta manni og fékk 41,71 FIS punkt og var bara tveimur punktum frá því að bæta mig… Úrslit hér:
http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58101
Í seinna mótinu gekk mér frekar skrautlega, átti ekki góða fyrri ferð og datt á hliðina í seinni. Brynjar Jökull Guðmundsson var líka að keppa á sömu mótum og átti hann ágætt seinna mót og skoraði 59,95 FIS punkta.