Kemst ekki á Ólympíuleika

Þá er það loksins orðið ljóst þegar aðeins sex dagar eru í brottför til Kanada að ég verð ekki með í för. Ísland fékk 3 sæti fyrir karlakeppendur í alpagreinum og ég var ekki valinn í þann hóp. Ég var einum FIS punkt frá því að ná á leikana og það má segja að það hafi verið ,,stöngin út” hjá mér í þetta skiptið.

Ég vissi að það yrði tæpt fyrir mig að komast á leikana vegna hnémeiðslanna sem ég varð fyrir í febrúar á síðasta ári en endurhæfingin gekk mjög vel og ég er ánægður með minn árangur þó ég hafi ekki náð inn á leikana.

Ég byrjaði að keppa aftur eftir meðislin 10. desember síðastliðinn og byrjaði þá í raun á núlli og ég hafði 6 vikur (41 dag) til að sanna mig fyrir leikana og það tókst því miður ekki. Ég er búinn að leggja allt sem ég gat í þetta og veit að ég gerði mitt besta.

Árangurinn á þessum 41 degi er samt sem áður mjög góður, ég er búinn að bæta mig á heimslistanum í svigi frá því fyrir meiðsli, stend í stað í stórsvigi og hækkaði aðeins um fjóra punkta í risasvigi. Ég er að standa mig betur heldur en fyrir meiðsli og er ánægður með þennan árangur þar sem svo stutt er síðan ég hóf keppni að nýju.

One Response to “Kemst ekki á Ólympíuleika”

  1. fanney Says:

    mjög leið yfir þvi að þu sert ekki a leiðinni til vancouver! það var gaman að vera samferða þér þessa daga þegar þú varst að koma aftur! lærði mikið af þér við það að fylgjast með þér í gegnum þessi baráttu meiðsli! alveg fáránlegt að þú gafst aldrei upp! eg er mjög stolt af þér, þó þú hafir ekki komist á OL. Í minum augum ertu bestur, vona að þú vitir það !!:) átt mikið inni og veturinn er alls ekki buinn!!

    kv. fanneyflotta nr. 1 fan!

Leave a Reply