Slóvenía, Tékkland, Noregur, Ísland
Flaug frá Slóveníu til Noregs á föstudaginn (29.jan) í gegnum Tékkland og var kominn í fjallakofa í Norefjell í noregi um kl. eitt um nóttina. Vaknaði svo 7:30 næsta dag til að keppa í stórsvigi. Mjög erfið brekka en líka skemmtileg, ein 90 gráðu beygja á einni hæðinni sem var frekar erfið, hef aldrei séð svona krappa beygju!
Komst niður báðar ferðir ágætlega og endaði í 7. sæti og fékk 49 FIS punkta. Úrslit hér:
http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58079
Á sunnudeginum kláraði ég fyrri ferðina, en datt út úr í þeirri seinni á hæðinni sem ég nefndi hér að ofan. Fékk högg á skíðið og missti pressuna á ytra skíðinu þannig að ég fór á hliðina og út úr brautinni. Er smá aumur í vinstra hnénu en það ætti að lagast á nokkrum dögum.
-Við systkinin á góðri stundu
-Sturla Snær Snorrason
Fanney systir og Sturla Snær voru líka að keppa á sama móti. Sturla stóð sig vel en þetta voru með fyrstu FIS mótum hjá honum. Fanney bætti punktastöðuna sína, hún skoraði 84 og 83 FIS punkta og endaði í 19. sæti báða dagana. Úrslit hjá konunum hér:
http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58077
og hér:
http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58078
Næst hjá mér er að fara í Kanadíska sendiráðið annað kvöld (þri 2. feb) þar sem ÍSÍ kunngjörir Ólympíufara Íslands til Vancouver 2010. Ég er nú hæfilega bjartsýnn á að ég fái að fara en það kemur sem sagt endanlega í ljós á morgun
Ef ég fer ekki á Ólympíuleika er planið að mæta á FIS/bikar mót á Akureyri næstu helgi 6-7. feb.

