Archive for March, 2010

Silfur á Landsmóti

Wednesday, March 31st, 2010

Nú er landsmótið á skíðum á Dalvík afstaðið en það fór fram um seinustu helgi.

Ég fór norður á Dalvík á miðvikudaginn í seinustu viku og ætlaði að æfa þangað til að landsmóti en eftir tvær ferðir í stórsvigi á miðvikudeginum fann ég mikið til í hnénu og ákvað því að taka alveg hvíld fram að stórsviginu á laugardeginum og láta þessar tvær ferðir duga sem æfing fyrir það.
Gekk síðan ágætlega í stórsviginu og náði 2. sæti á eftir Björgvini en Stefán var í því þriðja.

My Photos | GísliRafn.com

-Stefán, Björgvin og Gísli Rafn
Fanney systur gekk líka vel en hún náði þriðja sæti í sviginu og alpatvíkeppni.

My Photos | GísliRafn.com

-Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir

My Photos | GísliRafn.com

-Íris, María og Fanney

Þá urðum við í SKRR (Skíðaráð Reykjavíkur) bikarmeistarar í heildarstigakeppninni 2010

My Photos | GísliRafn.com

-SKRR

Framundan hjá mér eru æfingar sem reyna lítið á hnéð, er enn að ná því góðu og á að skíða sem minnst meðan ég er að jafna mig. Reikna svo með að keppa í stórsviginu á FIS-móti þarnæstu helgi á Akureyri ef ég verð verkjalaus í hnénu. Er búinn að ákveða að keppa ekki í svigi það sem eftir er af vetrinum, það þýðir lítið fyrir mig meðan hnéð er svona slæmt.

Bláfjöll, Dalvík og Oddskarð

Wednesday, March 17th, 2010

Fór í seinustu viku til Dalvíkur og æfði þar með Bjögga í þokkalegum aðstæðum. Færið var svolítið mjúkt en ekki svo slæmt engu að síður. Æfðum svig mánudag með Danda og liðinu á Dalvík og svo æfðum við sjálfir stórsvig á þriðjudaginn. Fór svo heim og flaug til Egilsstaða og æfði með Ármanni í Oddskarði á fimmtudag og föstudag. Fann mikið til í hnénu í svigæfingu á fimmtudeginum en það var löng braut og erfitt færi. Æfði svo stórsvig á föstudeginum.

Keppti svo í stórsvigi á laugardeginum og keyrði út úr brautinni í fyrri ferð. Var búinn að vera með hita um nóttina og morguninn og var frekar slappur í skoðuninni sem gæti haft sitt að segja…

Svo ákvað ég að keppa ekki í sviginu á sunnudeginum heldur freista þess að ná mér frekar góðum í hnénu fyrir landsmót sem fer fram þarnæstu helgi. Ætla að hvíla hnéð þangað til, en geri auðvitað þær æfingar sem ég get og reyna ekki mikið á hnéð þangað til. Það er t.d. hjóla, jafnvægisæfingar og lyftingar.

Bláfjöll

Thursday, March 4th, 2010

Fór í MRI myndatöku á mánudaginn og Brynjólfur læknir sagðist ekki sjá rifu í liðþófanum þannig að líklega hef ég bara teygt aðeins á liðþófanum og þurft smá hvíld. Er líka miklu betri núna og er búinn að vera að frískíða í Bláfjöllum undanfarið, fara í gymmið og styrkja hnéð og fara upp í hesthús og ríða út. 

Ætlaði norður um helgina en hætti við það vegna lélegrar veðurspár en ætla líklega á Dalvík á sunnudaginn og æfa þar svig næstu vikuna. Ekki slæmt að æfa þar því landsmótið verður einmitt þar. Svo er FIS/bikarmót þarnæstu helgi í Oddskarði á Austfjörðum.