Archive for February, 2010

Kominn heim…

Friday, February 26th, 2010

Nú er ég búinn að vera slæmur í hnénu. Fann að það virkaði ekki sem skildi á seinna svigmótinu í Kirkerud á laugardaginn, átti mjög erfitt með að byrja beygjuna með hægra hnénu útaf verk í innri líðþófanum þannig að skíðið slædaði bara út í vinstri beygjunum… Hélt samt að þetta væri bara þreyta í hnénu en fór og frískíðaði stórsvig á mánudeginum og fann þá ennþá fyrir verk í liðþófanum og skíðaði bara þrjár ferðir. Sá Paul sjúkraþjálfara í Geilo á þriðjudeginum og hann sagði að ég hefði teygt eða rifið smá upp úr liðþófanum og vildi að ég færi í MR myndatöku á hnénu. Ákvað í kjölfarið að sleppa því að fara til Jolster og Voss að keppa og reyna frekar að jafna mig í hnénu. Er kominn heim og ætla að tala við Brynjúlf lækni í dag (föstudag) og sjá hvað hann segir.

Er að vona að þetta sé ekki alvarlegt og að ég hafi bara teygt á liðþófanum og þurfi bara smá hvíld ;)

Svigmót í Kirkerud brekkunni í Bærum, Osló

Sunday, February 21st, 2010

Keppti á laugardaginn í tveimur svigmótum í Kirkerud brekkunni hér í Osló. Var mjög gaman að koma þangað aftur eftir að hafa æft þarna með Bærum skiklub þegar ég var krakki. Hafði ekki komið í brekkuna í 15 ár og í minningunni var hún auðvitað miklu lengri þar sem ég var svo lítill, en í rauninni er hún mjög stutt ;)

Fyrra mótið gekk vel, átti frekar hæga fyrri ferð en fína seinni. Var 90 sekúndubrot á eftir í seinni en 1,88 sekúndur í fyrri, samtals 2,78 sekúndur á eftir fyrsta manni og fékk 41,71 FIS punkt og var bara tveimur punktum frá því að bæta mig… Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58101

Í seinna mótinu gekk mér frekar skrautlega, átti ekki góða fyrri ferð og datt á hliðina í seinni. Brynjar Jökull Guðmundsson var líka að keppa á sömu mótum og átti hann ágætt seinna mót og skoraði 59,95 FIS punkta.

Stórsvig í Osló

Friday, February 19th, 2010

Keppti í gærkveldi í stórsvigi í Wyller-brekkunni í Osló en ég hafði verið við æfingar í Geilo í Noregi síðastliðna viku (kom 10. feb). Er búinn að fara í braut en einnig frískíða mjög mikið.

Gekk ekki vel í fyrri ferð í mótinu í gær, en skárra í þeirri seinni. Endaði í 41. sæti, úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58099

Á mótunum hér í Osló keppa líka 4 aðrir íslendingar, þeir Brynjar, Veigar, Ingþór og Skúli.

Keppi svo aftur í kvöld (föstudag) í stórsvig í sömu brekku, svo keppi ég í tveimur svigum á morgun laugardag í Kirkerud brekkunni í Osló. Svo fer ég aftur til Geilo um kvöldið og ætla að æfa mánudag og þriðjudag og keppa svo miðvikudaginn 24. feb í svigi í Jolster og svo flýg ég heim fimmtudaginn 25. feb og reikna með að vera með á FIS/bikarmótunum sem fara fram helgina 27-28. feb.

-Þessar húfur eru til sölu í 66 gráður norður og eru til styrktar Skíðasambandi Íslands.

Bikar/FIS mót á Akureyri

Tuesday, February 9th, 2010

Keppti í svigi á laugardaginn og var það stutt gaman því ég krækti í fjórða porti og varð því úr leik.

Á sunnudeginum sigraði ég stórsvigið með 1,21 sekúndu og átti besta tímann í báðum ferðum. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61797

Kemst ekki á Ólympíuleika

Tuesday, February 2nd, 2010

Þá er það loksins orðið ljóst þegar aðeins sex dagar eru í brottför til Kanada að ég verð ekki með í för. Ísland fékk 3 sæti fyrir karlakeppendur í alpagreinum og ég var ekki valinn í þann hóp. Ég var einum FIS punkt frá því að ná á leikana og það má segja að það hafi verið ,,stöngin út” hjá mér í þetta skiptið.

Ég vissi að það yrði tæpt fyrir mig að komast á leikana vegna hnémeiðslanna sem ég varð fyrir í febrúar á síðasta ári en endurhæfingin gekk mjög vel og ég er ánægður með minn árangur þó ég hafi ekki náð inn á leikana.

Ég byrjaði að keppa aftur eftir meðislin 10. desember síðastliðinn og byrjaði þá í raun á núlli og ég hafði 6 vikur (41 dag) til að sanna mig fyrir leikana og það tókst því miður ekki. Ég er búinn að leggja allt sem ég gat í þetta og veit að ég gerði mitt besta.

Árangurinn á þessum 41 degi er samt sem áður mjög góður, ég er búinn að bæta mig á heimslistanum í svigi frá því fyrir meiðsli, stend í stað í stórsvigi og hækkaði aðeins um fjóra punkta í risasvigi. Ég er að standa mig betur heldur en fyrir meiðsli og er ánægður með þennan árangur þar sem svo stutt er síðan ég hóf keppni að nýju.

Slóvenía, Tékkland, Noregur, Ísland

Monday, February 1st, 2010

Flaug frá Slóveníu til Noregs á föstudaginn (29.jan) í gegnum Tékkland og var kominn í fjallakofa í Norefjell í noregi um kl. eitt um nóttina. Vaknaði svo 7:30 næsta dag til að keppa í stórsvigi. Mjög erfið brekka en líka skemmtileg, ein 90 gráðu beygja á einni hæðinni sem var frekar erfið, hef aldrei séð svona krappa beygju!

Komst niður báðar ferðir ágætlega og endaði í 7. sæti og fékk 49 FIS punkta. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58079

Á sunnudeginum kláraði ég fyrri ferðina, en datt út úr í þeirri seinni á hæðinni sem ég nefndi hér að ofan. Fékk högg á skíðið og missti pressuna á ytra skíðinu þannig að ég fór á hliðina og út úr brautinni. Er smá aumur í vinstra hnénu en það ætti að lagast á nokkrum dögum.

-Við systkinin á góðri stundu

 

-Sturla Snær Snorrason

 

Fanney systir og Sturla Snær voru líka að keppa á sama móti. Sturla stóð sig vel en þetta voru með fyrstu FIS mótum hjá honum. Fanney bætti punktastöðuna sína, hún skoraði 84 og 83 FIS punkta og endaði í 19. sæti báða dagana. Úrslit hjá konunum hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58077

og hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=58078

Næst hjá mér er að fara í Kanadíska sendiráðið annað kvöld (þri 2. feb) þar sem ÍSÍ kunngjörir Ólympíufara Íslands til Vancouver 2010. Ég er nú hæfilega bjartsýnn á að ég fái að fara en það kemur sem sagt endanlega í ljós á morgun

Ef ég fer ekki á Ólympíuleika er planið að mæta á FIS/bikar mót á Akureyri næstu helgi 6-7. feb.