Hér er auglýsing sem gerð var fyrir 66° norður en landsliðið Íslands á skíðum hefur verið styrkt og notað föt frá þeim í nokkur ár og erum mjög ánægð með það
Í auglýsingunni eru nokkrir úr Ólympíuliði Íslands fyrir Vancouver 2010 og þau birtast í þessari röð: Björgvin Björgvinsson, Gísli Rafn Guðmundsson, Stefán Jón Sigurgeirsson, Sigurgeir Halldórsson, Árni Þorvaldsson og María Guðmundsdóttir.
Þá er það að frétta síðan ég var í Zagreb að ég var í fríi 21. jan, æfði svig með hinum í landsliðinu 22. jan í rosalega góðum aðstæðum. Búið var að ,,vatna” brautina sem við æfðum í en þá er vatni sprautað í snjóinn til að gera hann harðan og þetta var bara ís sem við vorum að æfa á og sást ekki spor í brautinni þó að við værum búnir með 30 ferðir. Það gerist ekki mikið betra
Svo 23. og 24. fór ég til Göstling - Hochkar í Austurríki og keppti þar á tveimur svigmótum. Gekk mjög vel í fyrra mótinu, endaði í 5. sæti og bætti punktana mína en ég fékk 39,5 FIS punkta í því móti. Úrslit hér: http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&raceid=60684
-Verðlaun voru veitt fyrir fyrstu 5 sætin
Í seinna mótinu gekk ágætlega, ég gerði mistök í fyrri ferðinni og var ekki nógu hraður í þeirri seinni og endaði í 7. sæti og fékk 44,86 FIS punkta. Úrslit hér:
-Hér er mynd af skíðasvæðinu í Hochkart, svigmótið var í brekkunni hægra megin við stólalyftuna á myndinni.
Svo keyrði ég á annan stað, Innerkrems sem er líka í Austurríki og keppti þar í tveimur risasvigum mánudaginn 25. jan. Ég keyrði út úr brautinni í fyrra mótinu á fyrstu hæðinni, það kom hressileg beygja á miklum hraða eftir flatann og ég fór of beint á portið á hæðinni og náði ekki því næsta og keyrði út úr.
Á seinna mótinu komst ég nú niður, það var mjög hröð og bein braut sem hentar mér ekki mjög vel og ég endaði í 36. sæti. Úrslit hér: http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61885
Næst er það æfing á morgun, svo fer ég til Noregs á föstudaginn (29. jan) og keppi í stórsvigi í Norefjell 30. og 31. jan, fer svo heim með kvöldflugi 31. jan. Verður notalegt að komast í smá frí heima, þetta er búin að vera mikil törn hjá mér alveg síðan í byrjun desember.
Er kominn til Zagreb í Króatíu þar sem ég keppi í tveimur svigum, eitt í dag og annað á morgun. Í dag var markmiðið hjá mér að klára til þess að sjá hvar ég stæði hérna í Evrópu og öðlast meira sjálfstraust.
Aðstæður hér í eru góðar, hart og fínt færi enda stutt síðan heimsbikarmót karla var haldið í sömu brekku.
En fyrri ferðin gekk ekki mjög vel, ég missti alla ferð í seinustu nálinni og var því heilum fjórum sekúndum á eftir í þeirri ferð. Náði samt að halda mér í topp 30 og fékk því gott start í seinni ferðinni og skíðaði hana mjög vel og var bara einni sekúndu á eftir í henni og endaði því samtals 5 sekúndum á eftir fyrsta manni og í 19. sæti. Úrslit hér:
Er lítið búinn að blogga undanfarið þar sem dagskráin hefur verið mjög þétt hjá mér
Kom heim 23. des og var í fríi til 26. des en þá var haldið til Akureyrar en þar áttu að vera alþjóðleg FIS svigmót 27. og 28. des. Það hafði snjóað ótrúlega mikið fyrir norðan og svakalegir skaflar úti um allt. Ekkert var keppt þann 27. vegna þess að það var svo mjúkt færi að stangirnar héldust ekki uppi. Fór samt í fjallið og frískíðaði heilmikið, fór svo í svigbraut með KR-ingum.
28. des var færið orðið betra og voru þá haldin tvö svigmót þann daginn. Ég skíðaði ágætlega í þeim báðum, var með besta tímann eftir fyrri ferð í fyrra mótinu en hlekktist á í þeirri seinni og endaði 14. Úrslit hér:
Í seinna mótinu ákvað ég að keyra af öryggi og var heldur langt á eftir í fyrri ferðinni og ákvað að gefa aðeins í í þeirri seinni og það gekk mjög vel og ég endaði í fimmta sæti aðeins 34 sekúndubrotum á eftir fyrsta manni. Úrslit hér:
Var síðan í fríi 29. des og æfði svo stórsvig í Hlíðarfjalli 30. des og keyrði heim til Reykjavíkur sama dag. Ekki stoppaði ég stutt þar því ég hélt til Noregs snemm morguns 1. jan. Var í fríi 2. jan en æfði svig 3. jan og stórsvig 4. og 5. jan. 6. jan hélt ég til Oppdal til þess að keppa í tveimur stórsvigum og tveimur svigum. Það gekk ekkert svakalega vel, en ég kláraði bara fyrsta stórsvigið en féll í einu svigi og keyrði út úr brautinni í hinu sviginu og öðru stórsviginu. Úrslit úr fyrra stórsviginu hér:
Eftir þessi mót flaug ég til Slóveníu og hitti þar hina strákana í landsliðinu. Það var skrýtið en gaman að koma þangað því ég hafði ekkert komið í íbúðina sem við erum með í Prevalje (í Slóveníu) í næstum ár, eða síðan ég meiddist í hnénu.
Við kepptum í risasvigi 13. og 14. jan. Það gekk ekki mjög vel hjá mér en ég endaði 42 og 44. Aðstæður voru erfiðar, þoka var báða dagana og færið mjúkt þannig að brautin grófst töluvert. Úrslit hér að neðan:
Framundan eru svigæfingar og svo stefni ég á að keppa í svigmótum og einbeita mér að því fram að Ólympíuleikunum. Þarf að koma mér í keppnisform í svigi, þó það hafi gengið vel á Íslandi að keppa í svigi þá þarf ég að sanna mig líka hérna úti að mínu mati. Ég er með lágmörk fyrir leikana en það er spurning hvað Ísland fær að senda marga keppendur en það kemur endanlega í ljós 25. janúar.