Archive for November, 2009

Brjósklos

Sunday, November 29th, 2009

Í segulómuninni kom í ljós að ég var með brjósklos í bakinu, gula pílan á myndinni að ofan sýnir hvar brjóskið hefur ,,lekið” úr hryggnum og ýtir aðeins á mænuna sem svo veldur verknum.

Ég er bjartsýnn á að þetta lagist fljótlega, á fáeinum vikum, er ekki lengur með verki og er byrjaður að gera bakæfingar o.fl. æfingar. Núna þarf ég að passa mig að fara varlega þangað til þetta er búið að lagast. Þangað til fylgi ég fyrirmælum frá Tedda sjúkraþjálfara og geri æfingar sem styrkja bakið, hann mun segja mér hvað ég má gera og hvað ekki. Helst vil ég auðvitað bara fara á fullt strax aftur ;) en það má víst ekki. Þetta þarf að gróa fyrst.

Heima er fínt

Tuesday, November 24th, 2009

Frá því ég var á Juvass er ég búinn að vera í Geilo við æfingar, bæði á snjó og einnig þrekæfingar. Hef verið mjög duglegur og það hefur gengið mjög vel að æfa. Hef verið mest að æfa með NTG Geilo skíðamenntaskólanum, en einnig hef ég æft með félaginu hér í Geilo, Ungverska landsliðinu og pólverjum.

Þar sem æfingar gengu vel og hnéð í góðu standi stefndi ég upphaflega að því að keppa í svigi í Rjukan hérna í Noregi 21-22. nóv og í risasvigi í Hemsedal 24-25. nóv. Rjukan var aflýst, og ég sá mér ekki fært að keppa í Hemsedal vegna bakmeiðsla sem gerðu fyrst vart við sig fyrir tveimur vikum á hoppæfingu. Þá fékk ég smá tak neðarlega í hrygginn en það var komið í lag á tveimur dögum og ég fann ekkert fyrir því þangað til þarseinasta mánudag en þá fékk ég aftur verk á sama stað á svigæfingu og hef ekkert getað skíðað síðan.

Því var ekki annað að gera í stöðunni en að fljúga heim og laga þetta með aðstoð sjúkraþjálfara en ég kom heim á laugardaginn síðasta. Fer svo í segulómun í dag á landspítalanum og líklega kemur í ljós að þetta er eitthvað smávægilegt sem lagast fljótlega ;) 

Vona að ég verði kominn í stand fyrir æfingar á Akureyri sem hefjast um helgina :)