Archive for October, 2009

Aftur á Juvass

Sunday, October 18th, 2009

Ég ákvað að fara til Noregs á Juvaasbreen í staðinn fyrir að fara til Austurríkis með landsliðinu vegna þess að ég þarf að frískíða mikið útaf hnénu og treysti mér ekki strax að skíða í hörðu færi eins og var búið að vera þar undanfarið þó það sé núna búið að snjóa þar. Kom til Noregs seinasta sunnudag (11. okt) og fór beint uppá Juvaas og skíðaði svo þar mánudag til fimmtudags. Var í fjallinu frá 8-16, tók klukkutíma pásu í hádeginu nema á miðvikudeginum en þá skíðaði ég ekki eftir hádegi útaf verk í hnénu. Annars gekk þetta vel, skíðaði tvo daga stórsvig og tvo daga svig :)

Í næstu viku fer ég aftur á Juvass og verð líklega fram að næstu helgi. Vona að það verði álíka góðar aðstæður og voru í seinustu viku.

Juvass þriðjudaginn 13. okt