Juvasbreen og Geilo í Noregi
Tuesday, September 22nd, 2009Nú er óveður hér á Juvaas eins og sjá má á myndinni fyrir neðan. Lyfturnar voru lokaðar í dag þannig að við erum búin að vera að horfa á video og fara á eina þrekæfingu.
Seinasta vika var reyndar mjög góð, fengum 5 frábæra daga og fórum svo heim um helgina til Geilo. Þar gisti ég hjá Fanney systur. Skíðunin hjá mér hefur gengið mjög vel, ég fór hægt af stað enda ekki skíðað í 6 mánuði og hef sem betur fer ekkert fundið til í hnénu. Var meira að segja farin að skíða í svigbraut á föstudaginn. Nú er bara að vona að veðrið hérna batni eitthvað svo maður geti haldið áfram að æfa



