Archive for August, 2009

Wednesday, August 5th, 2009

Ég fór á skíði á Snæfellsjökli um verslunarmannahelgina, nánar tiltekið laugardaginn 1. júlí ‘09. Þá hafði ég ekkert skíðað síðan ég meiddist þann 14. febrúar ‘09. Við fórum fjögur, ég Birta, Erla og Helgi og vorum með tvo snjósleða til að draga okkur upp.
Ég hafði satt að segja ekki mikla trú á góðri æfingu, en færið var ótrúlega gott, enda var kalt um nóttina. Ég byrjaði á því að taka þrjár ferðir frjálst (ekki í braut) og hnéð var það gott að ég fór svo 4 ferðir í brautina og það kom mér skemmtilega á óvart hversu vel það gekk. Vorum með 70 porta braut sem gerir 280 beygjur.
Fann ekki mikið til í hnénu eftir þetta, fyrir utan smá þreytuverk. Nú er stefnan tekin á Kerlingafjöll næstu helgi þar sem ég ætla að ná tveimur dögum á skíðum. Vonandi verður gott veður og færi ;)


Erla, Gísli Rafn og Helgi.

Þá var frétt um ólympæiuliðið í morgunblaðinu í dag sem má sjá á þessari slóð:
http://www.mbl.is/mm/sport/frettir/2009/08/05/bjorgvin_hefur_titil_ad_verja/


Stefán Sigurgeirsson, Björgvin Björgvinsson, Gísli Rafn Guðmundsson, Árni Þorvaldsson og Sigurgeir Halldórsson hinn nýi liðsmaður.