Archive for July, 2009

Allur að koma til og landslið 2009-2010

Thursday, July 16th, 2009

Nú er kominn júlí (já tíminn flýgur hratt…!) og ég er alveg að ná fullu formi eftir aðgerðina í febrúar. Það eru sem sagt 5 mánuðir síðan aðgerðin var framkvæmd og hnéð lítur mjög vel út miðað við hversu stutt er síðan aðgerðin var gerð og það hversu alvarlegur áverkinn var. Þó er ljóst að ég get ekki farið á skíði alveg strax og fer því ekki með landsliðinu til Ástralíu í byrjun ágúst. Ég mun væntanlega koma inn í prógrammið hjá landsliðinu þegar ég er orðinn góður, og reikna með að það verði í okt-nóv.
Ég er aðallega búinn að vera að hjóla og svo gera alls kyns æfingar samkvæmt ráðleggingum frá Robba sjúkraþjálfara, þar á meðal lyftingar. Svo hefur maður verið að smella sér í alls konar tíma í World Class, t.d. power jóga, þeir tímar eru góðir, alls ekki auðveldir en taka á öllum líkamanum.
Næstu helgi ætla ég að hjóla frá Flúðum og inn í Þjórsárdal eftir einhverri fjallaleið með ákveðnum hjólaklúbb sem pabbi er í. Nú hugsa auvitað allir að þetta verði einhver auðveld leið fyrir gamla karla, en nei, það eru bara kappar sem eru að fara að hjóla þetta, þeir eru meira að segja alltaf að keppa, sumir búnir að hjóla alla leið til Akureyrar einu sinni í sumar! Þannig að það er ekki laust við að maður sé smá smeykur, nú kemur í ljós hvort maður sé í formi ;)
Eftir þetta hjólamission er planið að fara að hlaupa meira og taka svo þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst og hlaupa 10 km. Vonandi bæti ég tímann minn síðan síðast en þá hljóp ég á 44 mín. Vona svo að ég geti farið að taka spretti þegar ég er byrjaður að hlaupa, þegar ég fer að geta það verða mér allir vegir færir. Svo vantar mig ennþá smávegis uppá fulla beygju í hnénu, þarf að laga það áður en ég get farið á skíði aftur, en réttan er sem betur fer löngu komin og var aldrei neitt vandamál með hana.
Fór laugardaginn 4. júlí á ákveðinn dag hjá ÍSÍ og SKÍ, það var mjög skemmtilegt, við fórum m.a. á fyrirlestra hjá sálfræðingi og Dale Carnegie þjálfara. Þá horfðum við á kynningarmyndband frá ÓL í Vancouver 2010 sem var mjög skemmtilegt og vonandi kemst maður þangað ;) en ólympíuhópurinn var einnig kynntur en þar eru ég, Árni Þorvaldsson Ármanni, Björgvin Björgvinsson Dalvík, Sigurgeir Halldórsson skíðafélagi Akureyrar og Stefán Jón Sigurgeirsson Húsavík og hjá stelpunum eru það Iris Guðmundsdóttir skíðafélagi Akureyrar, Katrín Kristjánsdóttir skíðafélagi Akureyrar og María Guðmundsdóttir skíðafélagi Akureyrar.
Þá var Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir systir valin í Unglingalandsliðið en hún er að fara að flytja til Noregs og fer í skíðamenntaskóla í Geilo í haust.


Þessi var tekin laugardaginn 1. júlí ‘09 og hér eru allir sem eru í landsliðum SKÍ.