Fínt að frétta :)
Monday, March 30th, 2009já maður hefur það ágætt. Losnaði við hækjurnar og spelkuna fyrir rúmri viku síðan. Núna get ég gengið næstum eðlilega og er farinn að hjóla. Ég hitti sjúkraþjálfara tvisvar í viku og geri æfingar sjálfur þess á milli, en ég æfi alltaf eitthvað á hverjum degi. Æfingarnar ganga vel og gaman að sjá framfarir í hverri viku ![]()
Svo er ég á fullu í skólanum, skráði mig í aðeins meira en fullt nám í LBHÍ þegar ég kom heim þannig að það er nóg að gera…verður fínt að komast í páskafrí á föstudaginn þó ég þurfi reyndar að vinna aðeins í því líka. Svo eru fismót og landsmót 14-19 apríl, ég kíki örugglega á mótin sem verða í Reykjavík 14. og 15.
En þetta eru allar fréttir í bili, þangað til næst
….