Kominn heim
Saturday, February 28th, 2009Heyrðu ég kom heim á sunnudaginn (í dag er laugardagur) en heimferðin gekk vel og ekki verra að hafa svona marga pabba með til að hjálpa sér ![]()
Flugið var svolítið lengi að líða, fann mikið til eftir 1,5klst af fluginu en þá fékk ég að færa mig í flugfreyjusætið við útganginn og gat þá rétt úr fætinum sem var betra.
Nú þegar heim var komið fór ég til Örnólfs læknis í Orkuhúsinu og hann leit á hnéð og leist vel á það. Hann tappaði aðeins af hnénu til að minnka bólguna. Svo byrjaði ég í sjúkraþjálfun hjá Róbert á fimmtudaginn og er búinn að hitta hann daglega síðan. Það gengur vel með sjúkraþjálfunina og æfingarnar sem ég er að gera en nú er mikilvægt að ég nái að rétta úr hnénu og fái mátt í lærið og er ég að gera ákveðnar æfingar til þess 5 sinnum á dag.

