Fréttir !
Wednesday, January 21st, 2009Það er heldur betur kominn tími á blogg!
Af mér er allt gott að frétta, jólin voru frábær og ég komst í gott jólaskap á desembermótunum sem haldin voru á Akureyri rétt fyrir jól en þar snjóaði í stilltu veðru seinasta daginn ![]()
Við í landsliðinu komum heim frá Austurríki 17. des og flugum sama kvöld norður á Akureyri til að taka þátt í alþjóðlegu FIS svigmóti sem þar fór fram. Þar endaði ég í öðru sæti á báðum mótunum sem var ágætt miðað við það að ég hef ekkert æft svig að ráði síðan í Ástralíu í september vegna úlnliðsbrotsins, þó ég hefði nú helst viljað sigra :). En nú er ég reyndar búinn að losna við gifsið og kominn með spelku í staðinn sem ég á að hafa í mánuð í viðbót. Spelkuna fékk ég frá honum Guðmundi Jakobssyni hjá Össuri og nú get ég skíðað á fullu í svigi að nýju sem er bara gott mál því hún er jú mín sterkasta grein
Ég tók reyndar þátt í svigmóti í Arriach/Gerlitze í gær og gekk ágætlega í fyrri ferðinni, var tíundi eftir hana en krækti svo í veltikalla í seinni ferðinni og varð þannig úr leik.
Framundan eru núna æfingar næstu daga hér í Slóveníu og svo förum við að keppa í framhaldinu af því, en hvenær það verður er enn óljóst.
Ég verð að minnast á Björgvin Björgvinsson en hann náði þeim frábæra árangri í heimsbikarnum í Zagreb að komast í seinni ferðina en aðeins 30 fyrstu eftir fyrri ferðina fá að keyra þá seinni. Þessu hefur enginn annar skíðamaður náð annar nema Kristinn Björnsson. Reyndar var Dagný Linda Kristjánsdóttir mjög nálægt því að ná þessu á síðasta ári en þá endaði hún í 31. sæti.
Þetta er mjög jákvætt og sýnir að við Íslendingar getum alveg náð árangri á skíðum eins og aðrar stórar skíðaþjóðir enda er bannað fyrir Íslenska íþróttamenn að skýla sér á bakvið það að þeir séu frá ,,litla” Íslandi því við erum jú stórasta land í heimi ![]()
Hér er má sjá myndband af Björgvini í seinni ferðinni í heimsbikarnum:
http://www.youtube.com/watch?v=IorptneIDjw
Hurðaþjónustan ÁS; www.hurdir.is




