Archive for December, 2008

Meiri snjó..!!

Friday, December 12th, 2008

Heyrðu það er búið að snjóa og snjóa og snjóa og á að snjóa meira!

Því erum við nú í biðstöðu, það var búið að plana að við færum að keppa um helgina í risasvigi og næstu viku í stórsvigi en það er búið að aflýsa risasviginu og fresta stórsviginu. Virðist ekkert í gangi hérna í Evrópu þar sem það er búið að snjóa mikið í öllum ölpunum. Erum að spá í að fara bara að æfa en það er líka frekar erfitt í svona mjúku færi.

Annars er ég búinn að vera að æfa seinustu tvær vikur í Heiligenblut, Reiteralm og Hebalm og var kominn í góðan keppnisgír. En hann verður að bíða um sinn!

Æfing á Heiligenblut from Gísli Guðmundsson on Vimeo.