Evrópubikar í Landgraaf
Tuesday, October 28th, 2008Nú hefur verið valið hver fer á Evrópubikarmót innanhúss í Landgraaf í Hollandi og mun það vera Stefán Jón sem fær að starta þar ásamt Björgvini Björgvinssyni. Ég missti möguleikann á því að fá að keppa þegar úlnliðurinn brotnaði og er sem kunnugt er staddur á Íslandi. Þeir Árni Þorvaldsson og Sigurgeir Halldórsson sem einnig æfa með landsliði Íslands á skíðum verða áfram við æfingar í Mölltal í Austurríki fram í næstu viku.
Óska ég þeim Stefáni og Björgvini velfarnaðar í Evrópubikarnum, ég vona að Björgvin eigi eftir að bæta árangur sinn frá því í fyrra en þá endaði hann fimmti. Hvað Stefán varðar væri flott hjá honum að ná í topp 60 en þetta er hans fyrsta Evrópubikarmót.
Nú svo eru fréttir af úlnliðnum mínum þær að ég fer líklegast ekki í uppskurð en ég fæ að vita hvað ég þarf að vera lengi í gifsi í þessari viku. Svo reikna ég með að skella mér á skíði hérna heima eftir tvær vikur ef það verður snjór. Að vísu efast ég um að skíða í braut, frískíðun verður að duga til að byrja með.
