Archive for the ‘Videoblogg’ Category

Auglýsing fyrir 66° norður

Wednesday, January 27th, 2010

Hér er auglýsing sem gerð var fyrir 66° norður en landsliðið Íslands á skíðum hefur verið styrkt og notað föt frá þeim í nokkur ár og erum mjög ánægð með það :)

Í auglýsingunni eru nokkrir úr Ólympíuliði Íslands fyrir Vancouver 2010 og þau birtast í þessari röð: Björgvin Björgvinsson, Gísli Rafn Guðmundsson, Stefán Jón Sigurgeirsson, Sigurgeir Halldórsson, Árni Þorvaldsson og María Guðmundsdóttir.

Long time no blog!

Thursday, January 14th, 2010

Er lítið búinn að blogga undanfarið þar sem dagskráin hefur verið mjög þétt hjá mér ;)

Kom heim 23. des og var í fríi til 26. des en þá var haldið til Akureyrar en þar áttu að vera alþjóðleg FIS svigmót 27. og 28. des. Það hafði snjóað ótrúlega mikið fyrir norðan og svakalegir skaflar úti um allt. Ekkert var keppt þann 27. vegna þess að það var svo mjúkt færi að stangirnar héldust ekki uppi. Fór samt í fjallið og frískíðaði heilmikið, fór svo í svigbraut með KR-ingum.

 

28. des var færið orðið betra og voru þá haldin tvö svigmót þann daginn. Ég skíðaði ágætlega í þeim báðum, var með besta tímann eftir fyrri ferð í fyrra mótinu en hlekktist á í þeirri seinni og endaði 14. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61962

Í seinna mótinu ákvað ég að keyra af öryggi og var heldur langt á eftir í fyrri ferðinni og ákvað að gefa aðeins í í þeirri seinni og það gekk mjög vel og ég endaði í fimmta sæti aðeins 34 sekúndubrotum á eftir fyrsta manni. Úrslit hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=61964

Var síðan í fríi 29. des og æfði svo stórsvig í Hlíðarfjalli 30. des og keyrði heim til Reykjavíkur sama dag. Ekki stoppaði ég stutt þar því ég hélt til Noregs snemm morguns 1. jan. Var í fríi 2. jan en æfði svig 3. jan og stórsvig 4. og 5. jan. 6. jan hélt ég til Oppdal til þess að keppa í tveimur stórsvigum og tveimur svigum. Það gekk ekkert svakalega vel, en ég kláraði bara fyrsta stórsvigið en féll í einu svigi og keyrði út úr brautinni í hinu sviginu og öðru stórsviginu. Úrslit úr fyrra stórsviginu hér:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58063

Eftir þessi mót flaug ég til Slóveníu og hitti þar hina strákana í landsliðinu. Það var skrýtið en gaman að koma þangað því ég hafði ekkert komið í íbúðina sem við erum með í Prevalje (í Slóveníu) í næstum ár, eða síðan ég meiddist í hnénu.

Við kepptum í risasvigi 13. og 14. jan. Það gekk ekki mjög vel hjá mér en ég endaði 42 og 44. Aðstæður voru erfiðar, þoka var báða dagana og færið mjúkt þannig að brautin grófst töluvert. Úrslit hér að neðan:

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58243

http://www.fis-ski.com/uk/604/610.html?sector=AL&competitorid=71967&raceid=58241

Framundan eru svigæfingar og svo stefni ég á að keppa í svigmótum og einbeita mér að því fram að Ólympíuleikunum. Þarf að koma mér í keppnisform í svigi, þó það hafi gengið vel á Íslandi að keppa í svigi þá þarf ég að sanna mig líka hérna úti að mínu mati. Ég er með lágmörk fyrir leikana en það er spurning hvað Ísland fær að senda marga keppendur en það kemur endanlega í ljós 25. janúar.

Alþjóðlegt FIS mót í Soell í Austurríki

Tuesday, February 10th, 2009


Soell 06-02-2009 from Gísli Guðmundsson on Vimeo.

Wednesday, January 21st, 2009


Verðlaunaafhending á alþjóðlegu FIS mótunum á Akureyri 18-19. des ‘08 from Gísli Guðmundsson on Vimeo.

Alþjóðlegt FIS mót á Akureyri 17-19. des ‘08

Wednesday, January 21st, 2009

Hér er myndband af nokkrum keppendum í mótinu sem Gummi Kobba setti saman en hann er með þessa vefsíðu: http://frontpage.simnet.is/gjakobs/
Þetta mót var alþjóðlegt FIS mót sem var haldið í Hlíðarfjalli á Akureyri í desember 2008.
Ef einhverjir eru í vafa hver Gísli Rafn er á þessu myndbandi þá kemur hann niður brautina þegar 1:57 mínúta er eftir af myndbandinu ;)


Fismót fór fram í Des 2008 á Akureyri @ Yahoo! Video

Meiri snjó..!!

Friday, December 12th, 2008

Heyrðu það er búið að snjóa og snjóa og snjóa og á að snjóa meira!

Því erum við nú í biðstöðu, það var búið að plana að við færum að keppa um helgina í risasvigi og næstu viku í stórsvigi en það er búið að aflýsa risasviginu og fresta stórsviginu. Virðist ekkert í gangi hérna í Evrópu þar sem það er búið að snjóa mikið í öllum ölpunum. Erum að spá í að fara bara að æfa en það er líka frekar erfitt í svona mjúku færi.

Annars er ég búinn að vera að æfa seinustu tvær vikur í Heiligenblut, Reiteralm og Hebalm og var kominn í góðan keppnisgír. En hann verður að bíða um sinn!

Æfing á Heiligenblut from Gísli Guðmundsson on Vimeo.

Sauðárkrókur 7-9. nóvember

Monday, November 10th, 2008


Skíðasvæðið á Tindastóli from Gísli Guðmundsson on Vimeo.

-Gísli Rafn Guðmundsson

Úlnliðsbrot-og ég á leið heim :(

Saturday, October 25th, 2008


Úlnliður brotinn from Gísli Guðmundsson on Vimeo.

Inniæfing í fimleikum

Thursday, October 2nd, 2008


Skíðadeild Ármanns í fimleikum from Gísli Guðmundsson on Vimeo.

Videoblogg frá Nýja-Sjálandi og Malasíu

Wednesday, September 24th, 2008


Nýja-Sjáland og Malasía from Gísli Guðmundsson on Vimeo.