Nú er landsmótið á skíðum á Dalvík afstaðið en það fór fram um seinustu helgi.
Ég fór norður á Dalvík á miðvikudaginn í seinustu viku og ætlaði að æfa þangað til að landsmóti en eftir tvær ferðir í stórsvigi á miðvikudeginum fann ég mikið til í hnénu og ákvað því að taka alveg hvíld fram að stórsviginu á laugardeginum og láta þessar tvær ferðir duga sem æfing fyrir það.
Gekk síðan ágætlega í stórsviginu og náði 2. sæti á eftir Björgvini en Stefán var í því þriðja.
-Stefán, Björgvin og Gísli Rafn
Fanney systur gekk líka vel en hún náði þriðja sæti í sviginu og alpatvíkeppni.
-Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir
-Íris, María og Fanney
Þá urðum við í SKRR (Skíðaráð Reykjavíkur) bikarmeistarar í heildarstigakeppninni 2010
-SKRR
Framundan hjá mér eru æfingar sem reyna lítið á hnéð, er enn að ná því góðu og á að skíða sem minnst meðan ég er að jafna mig. Reikna svo með að keppa í stórsviginu á FIS-móti þarnæstu helgi á Akureyri ef ég verð verkjalaus í hnénu. Er búinn að ákveða að keppa ekki í svigi það sem eftir er af vetrinum, það þýðir lítið fyrir mig meðan hnéð er svona slæmt.
Fór í seinustu viku til Dalvíkur og æfði þar með Bjögga í þokkalegum aðstæðum. Færið var svolítið mjúkt en ekki svo slæmt engu að síður. Æfðum svig mánudag með Danda og liðinu á Dalvík og svo æfðum við sjálfir stórsvig á þriðjudaginn. Fór svo heim og flaug til Egilsstaða og æfði með Ármanni í Oddskarði á fimmtudag og föstudag. Fann mikið til í hnénu í svigæfingu á fimmtudeginum en það var löng braut og erfitt færi. Æfði svo stórsvig á föstudeginum.
Keppti svo í stórsvigi á laugardeginum og keyrði út úr brautinni í fyrri ferð. Var búinn að vera með hita um nóttina og morguninn og var frekar slappur í skoðuninni sem gæti haft sitt að segja…
Svo ákvað ég að keppa ekki í sviginu á sunnudeginum heldur freista þess að ná mér frekar góðum í hnénu fyrir landsmót sem fer fram þarnæstu helgi. Ætla að hvíla hnéð þangað til, en geri auðvitað þær æfingar sem ég get og reyna ekki mikið á hnéð þangað til. Það er t.d. hjóla, jafnvægisæfingar og lyftingar.
Fór í MRI myndatöku á mánudaginn og Brynjólfur læknir sagðist ekki sjá rifu í liðþófanum þannig að líklega hef ég bara teygt aðeins á liðþófanum og þurft smá hvíld. Er líka miklu betri núna og er búinn að vera að frískíða í Bláfjöllum undanfarið, fara í gymmið og styrkja hnéð og fara upp í hesthús og ríða út.
Ætlaði norður um helgina en hætti við það vegna lélegrar veðurspár en ætla líklega á Dalvík á sunnudaginn og æfa þar svig næstu vikuna. Ekki slæmt að æfa þar því landsmótið verður einmitt þar. Svo er FIS/bikarmót þarnæstu helgi í Oddskarði á Austfjörðum.
Nú er ég búinn að vera slæmur í hnénu. Fann að það virkaði ekki sem skildi á seinna svigmótinu í Kirkerud á laugardaginn, átti mjög erfitt með að byrja beygjuna með hægra hnénu útaf verk í innri líðþófanum þannig að skíðið slædaði bara út í vinstri beygjunum… Hélt samt að þetta væri bara þreyta í hnénu en fór og frískíðaði stórsvig á mánudeginum og fann þá ennþá fyrir verk í liðþófanum og skíðaði bara þrjár ferðir. Sá Paul sjúkraþjálfara í Geilo á þriðjudeginum og hann sagði að ég hefði teygt eða rifið smá upp úr liðþófanum og vildi að ég færi í MR myndatöku á hnénu. Ákvað í kjölfarið að sleppa því að fara til Jolster og Voss að keppa og reyna frekar að jafna mig í hnénu. Er kominn heim og ætla að tala við Brynjúlf lækni í dag (föstudag) og sjá hvað hann segir.
Er að vona að þetta sé ekki alvarlegt og að ég hafi bara teygt á liðþófanum og þurfi bara smá hvíld
Keppti á laugardaginn í tveimur svigmótum í Kirkerud brekkunni hér í Osló. Var mjög gaman að koma þangað aftur eftir að hafa æft þarna með Bærum skiklub þegar ég var krakki. Hafði ekki komið í brekkuna í 15 ár og í minningunni var hún auðvitað miklu lengri þar sem ég var svo lítill, en í rauninni er hún mjög stutt
Fyrra mótið gekk vel, átti frekar hæga fyrri ferð en fína seinni. Var 90 sekúndubrot á eftir í seinni en 1,88 sekúndur í fyrri, samtals 2,78 sekúndur á eftir fyrsta manni og fékk 41,71 FIS punkt og var bara tveimur punktum frá því að bæta mig… Úrslit hér:
Í seinna mótinu gekk mér frekar skrautlega, átti ekki góða fyrri ferð og datt á hliðina í seinni. Brynjar Jökull Guðmundsson var líka að keppa á sömu mótum og átti hann ágætt seinna mót og skoraði 59,95 FIS punkta.
Keppti í gærkveldi í stórsvigi í Wyller-brekkunni í Osló en ég hafði verið við æfingar í Geilo í Noregi síðastliðna viku (kom 10. feb). Er búinn að fara í braut en einnig frískíða mjög mikið.
Gekk ekki vel í fyrri ferð í mótinu í gær, en skárra í þeirri seinni. Endaði í 41. sæti, úrslit hér:
Á mótunum hér í Osló keppa líka 4 aðrir íslendingar, þeir Brynjar, Veigar, Ingþór og Skúli.
Keppi svo aftur í kvöld (föstudag) í stórsvig í sömu brekku, svo keppi ég í tveimur svigum á morgun laugardag í Kirkerud brekkunni í Osló. Svo fer ég aftur til Geilo um kvöldið og ætla að æfa mánudag og þriðjudag og keppa svo miðvikudaginn 24. feb í svigi í Jolster og svo flýg ég heim fimmtudaginn 25. feb og reikna með að vera með á FIS/bikarmótunum sem fara fram helgina 27-28. feb.
-Þessar húfur eru til sölu í 66 gráður norður og eru til styrktar Skíðasambandi Íslands.
Þá er það loksins orðið ljóst þegar aðeins sex dagar eru í brottför til Kanada að ég verð ekki með í för. Ísland fékk 3 sæti fyrir karlakeppendur í alpagreinum og ég var ekki valinn í þann hóp. Ég var einum FIS punkt frá því að ná á leikana og það má segja að það hafi verið ,,stöngin út” hjá mér í þetta skiptið.
Ég vissi að það yrði tæpt fyrir mig að komast á leikana vegna hnémeiðslanna sem ég varð fyrir í febrúar á síðasta ári en endurhæfingin gekk mjög vel og ég er ánægður með minn árangur þó ég hafi ekki náð inn á leikana.
Ég byrjaði að keppa aftur eftir meðislin 10. desember síðastliðinn og byrjaði þá í raun á núlli og ég hafði 6 vikur (41 dag) til að sanna mig fyrir leikana og það tókst því miður ekki. Ég er búinn að leggja allt sem ég gat í þetta og veit að ég gerði mitt besta.
Árangurinn á þessum 41 degi er samt sem áður mjög góður, ég er búinn að bæta mig á heimslistanum í svigi frá því fyrir meiðsli, stend í stað í stórsvigi og hækkaði aðeins um fjóra punkta í risasvigi. Ég er að standa mig betur heldur en fyrir meiðsli og er ánægður með þennan árangur þar sem svo stutt er síðan ég hóf keppni að nýju.
Flaug frá Slóveníu til Noregs á föstudaginn (29.jan) í gegnum Tékkland og var kominn í fjallakofa í Norefjell í noregi um kl. eitt um nóttina. Vaknaði svo 7:30 næsta dag til að keppa í stórsvigi. Mjög erfið brekka en líka skemmtileg, ein 90 gráðu beygja á einni hæðinni sem var frekar erfið, hef aldrei séð svona krappa beygju!
Komst niður báðar ferðir ágætlega og endaði í 7. sæti og fékk 49 FIS punkta. Úrslit hér:
Á sunnudeginum kláraði ég fyrri ferðina, en datt út úr í þeirri seinni á hæðinni sem ég nefndi hér að ofan. Fékk högg á skíðið og missti pressuna á ytra skíðinu þannig að ég fór á hliðina og út úr brautinni. Er smá aumur í vinstra hnénu en það ætti að lagast á nokkrum dögum.
-Við systkinin á góðri stundu
-Sturla Snær Snorrason
Fanney systir og Sturla Snær voru líka að keppa á sama móti. Sturla stóð sig vel en þetta voru með fyrstu FIS mótum hjá honum. Fanney bætti punktastöðuna sína, hún skoraði 84 og 83 FIS punkta og endaði í 19. sæti báða dagana. Úrslit hjá konunum hér:
Næst hjá mér er að fara í Kanadíska sendiráðið annað kvöld (þri 2. feb) þar sem ÍSÍ kunngjörir Ólympíufara Íslands til Vancouver 2010. Ég er nú hæfilega bjartsýnn á að ég fái að fara en það kemur sem sagt endanlega í ljós á morgun
Ef ég fer ekki á Ólympíuleika er planið að mæta á FIS/bikar mót á Akureyri næstu helgi 6-7. feb.
Hér er auglýsing sem gerð var fyrir 66° norður en landsliðið Íslands á skíðum hefur verið styrkt og notað föt frá þeim í nokkur ár og erum mjög ánægð með það
Í auglýsingunni eru nokkrir úr Ólympíuliði Íslands fyrir Vancouver 2010 og þau birtast í þessari röð: Björgvin Björgvinsson, Gísli Rafn Guðmundsson, Stefán Jón Sigurgeirsson, Sigurgeir Halldórsson, Árni Þorvaldsson og María Guðmundsdóttir.